FYRIRVARAR
Fyrirvari um verð og upplýsingar
Vinsamlegast athugið að verð og aðrar upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um villur og breytingar.
Fyrirvari vegna þjónustu við GDPR innleiðingu á vef viðskiptavina
Þjónusta okkar við GDPR innleiðingu á vefi viðskiptavina byggir á eftirfarandi:
- Þeirri þekkingu sem við höfum aflað okkur um lög (nr. 90/2018) um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga m.a. í gegnum upplýsingar frá lögmanni og sérfræðingi í persónuverndarrétti.
- Þeirri þekkingu sem við höfum aflað okkur um reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016. (Genereal Data Protection Regulation, GDPR) m.a. í gegnum námskeið erlendis sem eru sérsniðin í kringum GDPR.
- Þeirri þekkingu sem við höfum í vefmálum til að framkvæma tæknilega útfærslu þar sem við á t.d. vegna friðhelgisstillinga.
Við erum ekki lögfræðingar og veitum þar af leiðandi ekki lögfræðiráðgjöf.
Við berum við ekki ábyrgð á efni sem birt er á vefsvæðum viðskiptavina fyrirtækisins (sjá skilmála, 7. grein).