Ný heimasíða Humarsölunnar í loftið

Humarsalan sem hefur verið viðskiptavinur Tónaflóðs til fjölda ára opnaði nýverið endurbætta heimasíðu sem skoða má á vefslóðinni www.humarsalan.is.

Humarsalan var stofnuð í Keflavík þann 29. janúar 2004. Markmið fyrirtækisins er að bjóða uppá 1. flokks humar allt árið um kring og veita fyrirtaks þjónustu. Fljótlega fór fyrirtækið einnig að bjóða uppá skötuselskinnar, sem njóta mikilla vinsælda. Orðstýr fyrirtækisins hefur jafnt og þétt vaxið og má með sanni segja að merki Humarsölunnar sé tákn um gæði.

Heimasíða Humarsölunnar: www.humarsalan.is