Vefurinn upp á 3 dögum Við afhendum vefinn á 3 dögum eftir að efni hefur verið komið til okkar.
Ódýrt og öflugt Pakkinn inniheldur létta útgáfu af vefumsjónarkerfinu okkar sem er smíðað af Tónaflóði og hefur verið á markaðnum í mörg ár. Þó hér sé um létta útgáfu að ræða, þá er vefritillinn sá sami og í dýrari pökkunum og með þeim öflugri sem finnst í þessum verðflokki. Það er leikur einn að setja inn myndir, myndbönd, hljóðskrár, pdf og word skjöl svo dæmi sé tekið. Kerfið er á íslensku og öll hjálp bæði skjöl og kennslumyndbönd eru einnig á íslensku.

Staðlað útlit Þessi pakki byggir á stöðluðu útliti (vefsniði) og hefur viðskiptavinur val um 9 möguleika. Við setjum inn logo og/eða mynd í haus og göngum frá valmynd og viðskiptavinur sér svo um að setja inn texta og myndir á vefsíðurnar. Viðskiptavinur hefur aðgang að þjónustuborði á opnunartíma alla virka daga.
Sem dæmi um vefi í þessum pakka má nefna:
Eftirfarandi kerfiseiningar eru innifaldar í pakkanum:
- Vefsíður
- Skráning leitarorða
- Fréttir / Greinar (1 flokkur)
- Fréttabréf
- Kannanir
- Myndasafn
- Skráastjóri
- Aðgangsstýringar
- Teljari
Mánaðargjald með þessum pakka er 4.900 kr. + vsk
Innifalið í mánaðargjaldi er:
- 750 MB geymslupláss (vefur, gagnagrunnur og pósthólf)
- Hýsing á léni (DNS hýsing)
- Hýsing á vef
- Eldveggjaþjónusta (minnkar hættu á óæskilegum tölvuinnbrotum)
- Allt að 5 netföng
- Vefpóstsaðgangur
- Vírusskönnun á pósti
- Ruslpóstsíun
- Aðgengi að íslenskum tölfræðiþjóni (teljari)
- Afritun gagna
- Símaþjónusta án endurgjalds á opnunartíma
Vefþjónar Tónaflóðs eru reglulega endurnýjaðir og aðeins er notast við tölvu- og hugbúnað frá þekktum framleiðendum.
Tónaflóð vefumsjón styður helstu vafra á markaðnum og hægt er að vinna í kerfinu í Internet Explorer, Firefox, Safari, Google Chrome og Netscape.
Okkar markmið er ekki að vera ódýrust, heldur höfum við ávallt haft að markmiði að bjóða vandaða vöru og þjónustu á sanngjörnu verði. |